Barnabónus

Algengar spurningar

 

Fyrir hvaða aldurshóp er gjöfin?

Gjöfin er samsett með þarfir barna að 3 mánaða aldri í huga.
Vörurnar – svo sem bleyjur, náttgalli og snuð – eru valdar út frá því sem nýtist best á fyrstu mánuðum barnsins og henta því best á þessu aldursbili.


Hverjir geta sótt um?

Einungis foreldrar barna sem fæðast á árinu 2025 geta sótt um. Við skiljum vel að þetta geti vakið vonbrigði hjá þeim sem eignuðust barn í lok árs 2024, en aldursviðmið gjafarinnar miðast við notagildi innihaldsins.


Er hægt að velja vörur eftir kyni barnsins?

Nei, kassarnir eru ekki kynjaskiptir. Hver kassi er einstakur og eru litir og mynstur fjölbreytt en ekki sérsniðin eftir kyni.


Er hægt að skila eða skipta vörum úr gjöfinni?

Því miður ekki. Kassarnir eru samsettir og pakkaðir fyrirfram og því ekki hægt að skila eða skipta út einstökum vörum í boxinu.


Get ég skipt út vöru sem ég get ekki notað eða fengið aðra í staðin?

Við getum því miður ekki gert breytingar á innihaldi gjafarinnar. Ef vara í boxinu – t.d. með ákveðnu innihaldsefni – hentar ekki, mælum við með að setja hana til hliðar eða gefa áfram. Við tökum þó öllum ábendingum fagnandi og skoðum þær við áframhaldandi þróun verkefnisins.


Hvernig sæki ég gjöfina?

Gjöfin er eingöngu afhent eftir að umsókn hefur verið samþykkt og staðfestingarpóstur með strikamerki hefur verið sendur. Strikamerkið þarf að framvísa við móttöku, og er gjafaboxið aðeins afhent gegn framvísun þess. Barnabónusinn er afhentur á beltakassa og er ekki hægt að sækja hann nema á þeim afhendingarstað sem valinn var sérstaklega í umsóknarferlinu. Afhending fer eingöngu fram í þeim sjö verslunum sem tilgreindar eru í umsóknarferlinu og ekki er hægt að breyta afhendingarstað eftir á.


Getur einhver annar sótt boxið fyrir mína hönd?

Já – þú getur sent aðila staðfestingarpóstinn þinn, þegar umsókn er samþykkt. Sá kóði sem fylgir póstinum er einungis hægt að nota einu sinni, svo ef þú sem foreldri getur ekki nálgast boxið getur þú fengið aðstandanda til að sækja fyrir þig með þeim hætti. ATH. Einungis er hægt að skanna hvern kóða einu sinni.


Er einhver forgangsröðun á úthlutun?

Já – við afhendum eftir fæðingardegi barns. Nú erum við að vinna upp fyrstu þrjá mánuði ársins og að því loknu geta foreldrar búist við afhendingu á boxi þann mánuð sem þeir eiga von á barni. Þökkum kærlega fyrir þolinmæðina og skilninginn.

Allar fyrirspurnir mega berast okkur á [email protected]