Barnabónus
Ráð til foreldra
Helga Reynisdóttir, ljósmóðir, brjóstagjafaráðgjafi og eigandi Ljósu, deilir góðum ráðum til nýbakaðra foreldra.


Mín bestu ráð til ykkar kæru foreldrar
Beint eftir fæðingu, fyrstu dagar og upphaf brjóstagjafarinnar.
Að loknu því magnaða ferðalagi sem að meðganga og fæðing er taka við krefjandi dagar.
Fyrst eftir fæðingu er barnið þreytt en fæðingin tekur líka mikið á barnið og má búast við að barnið sofi mikið fyrsta sólarhringinn. Mæður eru líka þreyttar eftir fæðingu og en eftir fæðingu eru verkefnin misjöfn eftir því hvernig fæðingin gekk. Það gildir þó um allar mæður að sína sér mildi og reyna að hvílast vel, drekka og nærast vel og taka verkjalyf eftir þörfum . Það skiptir einnig miklu máli að lesa í þarfir barnsins og leyfa barninu að liggja mikið á brjósti (ef að það er ykkar val) og hafa barnið mikið húð við húð fyrstu dagana. Fyrsta daginn þarf að klæða barnið úr leggja það húð við húð og hvetja það til að drekka. Ef þú liggur sængurlegu vertu óhrædd að biðja um aðstoð við brjóstagjöfina og fá góðar leiðbeiningar fyrir heimförina.
Fyrsti klukkutíminn eftir fæðingu barnsins er oft kallaður gullni klukkutíminn en þar kynnast foreldar börnunum sínum, hormónin okkar kveikja á tilfinningum til barnanna okkar og líkaminn fær þau skilaboð að hefja mjólkurmyndun. Þarna skipir miklu máli að njóta stundarinnar, það verður nægur tími til að tilkynna komu barnsins og þarna er mjög mikilvægt að hefa brjóstagjöf sem allra fyrst en konur sem leggja börnin á brjóst innan klukkutíma framleiða meiri mjólk þegar fram líða stundir.
Börn fæðast með aukaforða að vökva og blóðsykur til að halda sér á floti á meðan að þau fá broddmjólkina í litlu magni til að byrja með, það er eðlilegt að börn gangi á þennan forða og er hann til þess gerður. Það má búast við að börn léttist um allt að 7% fæðingarþyngdar sinnar á fyrstu 5 dögum í lífinu. Á öðrum sólahringi eru börn yfirleitt farin að ganga vel á blóðsykurinn sinn og ekki er óalgengt að börn sem hafa verið þreytt og hálf rafmagnslaus frá fæðingu fari að láta í sér heyra þegar svengdin ber að dyrum. Þetta verður oft að erfiðu nótt tvö en þá vill barnið helst ekki gera annað en að vera á brjósti og getur grátið dramtískt ef það er ekki þar. Þarna er barnið í svokölluðum keðjugjöfum að örva og örva brjóst móður sinnar. Mjólkin kemur svo oft á degi 2-5 eftir fæðingu, misjafnt eftir aðstæðum, fæðingarmáti getur haft áhrif og blóðmissir til dæmis en konur sem fara í keisara og konur sem missa mikið blóð eftir fæðingu eru stundum örlítið lengur að fá mjólkina. Það leynir sér oft ekki þegar mjólkin kemur en konur bólgna þá gjarnan upp og fá stálma.
Börn ættu að hafa óheft aðgengi að brjóstum móður sinnar og ætti að gefa barninu að drekka þegar það sýnir þess merki, börn eru mismjöfn sum börn drekka ört og stutt og önnur virðist vilja liggja endalaust á brjósti. Þetta er tímabil sem gengur yfir en framleiðsla mjólkunnar er háð því að einhver drekki hana og líkaminn stillir sig af til þess að veita barninu þínu næga næringu. Börnin leggjast örast á brjóst í upphafi og svo kemst jafnvægi á brjóstagjöfina, eftir 6-12 vikur, og barnið drekkur reglulegar.
Það er oft mikið áhyggjuefni mæðra hvort þær framleiði nóg en best er að hlusta á kyngingu barnsins og sjá útskilnað barnsins, ef þið hafið áhyggjur af þyngdaraukiningu er hægt að biðja um aukavigtun.
Það getur reynst krefjandi eftir fæðingu að koma barni á brjóst og hefja myndun mjólkur en þetta hefst allt saman með elju og seiglu að vopni og góðum stuðningi frá ykkar nánasta fólki. Það er magnað hvað stuðningur í brjóstagjöf er mikilvægur og getur verið gott að ræða væntingar þínar til brjóstagjafarinnar á meðgöngu svo að vinir og vandamenn geti stutt þig í því magnaða ferðalagi.
Fyrsta svarið við flestum brjóstagjafavanda er að leggja barnið húð við húð. Húð við húð er hægt að bæta svo margt, barnið er ekki bara í nándinni hjá móður, föður eða ættingja heldur hjálpar húð við húð barninu við að koma jafnvægi á blóðsykur, hjálpar með hitastjórnun, barnið róast, andadráttur þess og hjartsláttur. Húð við húð stuðlar að brjóstagjöf en barnið á þá auðveldara aðgengi að brjóstinu og snertingin örvar sogviðbragð barnsins. Húð við húð er oft besta svarið við flestum brjóstagjafavanda svo endilega hækkið á ofnunum ykkkar, verið ber að ofan og hafið barnið á bleyjunni upp við ykkur.
Lestu meira: