Um Bónus

Sérstaða

Bónus hefur frá stofnun boðið viðskiptavinum sínum lægsta mögulega matvöruverð á Íslandi. Bónus hefur skemmri opnunartíma en margir keppinautar og miðar hönnun Bónusverslana að því að halda kostnaði í lágmarki. Innréttingar í verslunum Bónus eru einfaldar og ódýrar en þó alltaf gætt að því að hafa verslanir snyrtilegar og aðgengilegar. Þess vegna getur Bónus boðið viðskiptavinum sínum lægsta verðið. Bónus hefur frá fyrstu tíð kappkostað að bjóða neytendum algengustu vöruflokkana en með breyttum neysluvenjum hefur vöruval aukist til muna Vöruframboðið spannar allar meginþarfir heimilishaldsins en auk þess býður Bónus úrval af sérvöru, eins og grunnvöru í fatnaði og árstíðabundnar vörur.

 

Bónus í hnotskurn

Það er Bónus mikilvægt að halda því trausti sem almenningur hefur sýnt verslunarkeðjunni í gegnum árin og eitt af leiðarljósum Bónus hefur ávallt verið að hafa álagningu sem lægsta. Bónus býður sama verð í öllum sínum verslunum um land allt sem reynst hefur afar dýrmætt gagnvart neytendum. Það sannast ítrekað í verðkönnunum að Bónus býður lægsta vöruverð á Íslandi, þrátt fyrir harðnandi samkeppni. 

 

Samfélagsleg ábyrgð Bónus

Bónus hefur ávallt lagt mikla áherslu á umhverfismál og flokkað plast, pappa og annan úrgang í fjölda ára. Verslunin var til að mynda fyrst allra íslenskra matvöruverslana til að kolefnisjafna rekstur sinn á árinu 2018. Verslunin hefur verið leiðandi í umhverfismálum á Íslandi og hætti til að mynda sölu á hefðbundnum plastpokum í október 2018 og hóf að bjóða viðskiptavinum sínum upp á 100% lífniðurbrjótanlega poka í stað þeirra. Sömuleiðis reynir verslunin að sporna við hvers kyns matarsóun eftir fremsta megni með góðum árangri. Lýðheilsumál hafa einnig verið ofarlega í huga Bónus og styður verslunin við fjölda íþróttafélaga á Íslandi og hefur jafnframt aldrei selt tóbak frá stofnun matvörukeðjunnar. Þú getur lesið meira um umhverfisstefnu Bónus hér.

Umsagnir

frá viðskiptavinum

Snyrtileg og björt

Snyrtileg og björt verslun. Framúrskarandi þjónustulund starfsfólks sem maður er ekki vanur í lágvöruverslun.

– Guðmundur

Minna plast

Leiðandi í útrýmingu plasts á Íslandi. Magnað!

– Árni Stefán

Umsagnir

frá viðskiptavinum

Gott verð!

Mikið úrval og gott verð.

– Joanna

Besta búðin í bænum

Besta búðinn í bænum. Alltaf gaman að fara og starfsfólkið er upp á 10…

– Adam

Sagan

Feðgarnir Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannesson opnuðu fyrstu Bónusbúðina í 400 fermetra húsnæði við Skútuvog laugardaginn 8. apríl 1989. Jóhannes sagði í DV við þetta tækifæri: „Verslunin nefnist Bónus og dregur nafn sitt af þeim afslætti sem veittur verður af öllum vörum.“

Frábærar viðtökur

Ekki þarf að fara mörgum orðum um viðtökur landsmanna. Þær voru í einu orði sagt frábærar enda vöruverð strax miklu lægra í nýju versluninni. Salan varð strax þrefalt meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir og um mitt sumar 1989 var ráðist í að opna aðra Bónusverslun, í Faxafeni 14. Ári síðar, 1990, var svo þriðja verslunin opnuð að Reykjavíkurvegi 72 í Hafnarfirði og öðru ári seinna sú fjórða, að Smiðjuvegi í Kópavogi. Sama ár var opnað í Iðufelli og á árinu 1992 á Seltjarnarnesi.

Helmingsmunur á verði

Neytendur kættust eins og nærri má geta og í fréttum dagblaðanna frá 1991 má lesa hversu mikil bylting Bónus var í raun fyrir hinn almenna neytanda. Verðmunur í verðkönnunum var sagður gríðarlegur: Í DV segir í febrúar 1991: „Hátt í helmingsmunur á innkaupakörfu.“ Síðan upphefst mikið verðstríð þar sem DV metur gróða neytenda á við 30 raðhús í Reykjavík, allt fyrir tilstilli Bónus. Forseti Alþýðusambandsins segir ennfremur í Alþýðublaðinu í apríl 1991 að Bónus skili árangri og á þar við verðbólguna sem farið hafði lækkandi vegna lækkunar á vöruverði.

Bónus í sérflokki

Bónuskaupmenn fóru fljótlega að flytja vörur inn sjálfir til þess að ná hagstæðara verði og því var að sjálfsögðu skilað til neytenda. Í DV í mars 1992 segir í fyrirsögn eftir að Neytendasamtökin gerðu verðkönnun, einu sinni sem oftar: „Bónus er í sérflokki“. Þannig hefur það verið allar götur frá því að fyrsta verslunin var opnuð, Bónus hefur verið í sérflokki. Verslanirnar hafa verið reknar með lágmarkskostnaði og eitt leiðarljós hefur lýst mönnum öll þessi ár. Það leiðarljós er að Bónus býður alltaf betur en aðrar verslanir. 

Bónus Garðatorg

Bónus í dag

Í dag rekur Bónus 33 verslun víðsvegar um landið en 20 eru á höfuðborgarsvæðinu og 13 á stórum þéttbýlisstöðum á landsbyggðinni. Hjá Bónus starfa um þúsund manns og hefur þeim fjölgað mikið á síðustu árum. Eitt stærsta samfélagsverkefni Bónus frá stofnun hefur verið að bjóða sama lága verðið um land allt en auk þess hugar keðjan vel að umhverfisvernd og takmarkar sóun. Bónus gerir sér grein fyrir ábyrgðinni sem fylgir rekstri stórrar verslanakeðju og áhrifunum sem slíkur rekstur getur haft á umhverfið. Síðastliðin ár hefur Bónus því lagt aukna áherslu á að stuðla að verndun umhverfis og náttúru með góðri og virkri umhverfisstefnu. Hjá Bónus er rekstur allra verslana kolefnisjafnaður, sorp er flokkað vandlega og plastnotkun og matarsóun hefur minnkað gríðarlega. 

Til að koma til móts við breyttar neysluvenjur viðskiptavina hefur vöruúrval Bónus aukist til muna með hverju ári. Í dag er Bónus með yfir 3.000 vörunúmer í verslunum sínum. Vöruúrvalið er því mjög fjölbreytt og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í hillum Bónus. Þrátt fyrir aukið vöruúrval hefur Bónus aldrei kvikað frá upprunalegu hugmyndafræði sinni, að selja gæðavörur á lægsta mögulega verði fyrir neytendur. Þetta vita viðskiptavinir og þess vegna velja þeir Bónus.

Skrifstofan

Starfsmenn skrifstofunnar hafa flestir áratuga reynslu hjá Bónus

Björgvin Víkingsson
Framkvæmdastjóri

bjorgvin[hjá]bonus.is

Örvar Þór Kristjánsson
Innkaupastjóri

orvar[hjá]bonus.is

Hafdís Einarsdóttir
Vöruflokkastjóri

hafdis[hjá]bonus.is

Hildur Guðný Guðlaugsdóttir
Vöruflokkastjóri

hildurg[hjá]bonus.is

Pétur Melax
Vöruflokkastjóri

peturmelax[hjá]bonus.is

Lárus Þór Þórisson
Verðþróunarsérfræðingur

larus[hjá]bonus.is

John Smith
Ráðgjafi

johnsmith[hjá]bonus.is

Steinar J. Kristjánsson
Upplýsingatæknistjóri

steinar[hjá]bonus.is

Gunnur Sveinsdóttir
Mannauðsstjóri

gunnur[hjá]bonus.is

Pétur Sigurðsson
Aðstoðarmaður framkvæmdastjórnar

peturs[hjá]bonus.is

Baldur Ólafsson
Markaðsstjóri

baldur[hjá]bonus.is

Sigurður Ó. L. Bragason
Grafískur hönnuður

sigurdur[hjá]bonus.is

Erla Magnúsdóttir
Fjármálastjóri

erla[hjá]bonus.is

Ester Harðardóttir
Bókhald/Launafulltrúi

ester[hjá]bonus.is

Íris Sigurðardóttir
Bókhald/Gjaldkeri

iris[hjá]bonus.is

Kristín Sigurðardóttir
Bókhald/Kortaþjónustufulltrúi

kristin[hjá]bonus.is

Birta Líf Bang
Bókhald/þjónustufulltrúi

birtalif[hjá]bonus.is

Otti Þór Kristmundsson
Rekstrarstjóri

otti[hjá]bonus.is

Guðmundur M. Þorsteinsson
Aðstoðar rekstrarstjóri

gummimar[hjá]bonus.is

Alexander Þórsson
Svæðisstjóri

lexi[hjá]bonus.is

Bjarni Sæmundsson
Svæðisstjóri

bjarni[hjá]bonus.is

Einar Páll Sigurvaldason
Svæðisstjóri

einar[hjá]bonus.is

Jón Ævar Sveinbjörnsson
Svæðisstjóri Norður- Norðvestur- og Austurlands

jon[hjá]bonus.is

Guðmundur Á. Sigurdórsson
Viðhald

gas[hjá]bonus.is

Guðmundur Þorgrímsson
Bílstjóri

bilstjori[hjá]bonus.is

Verslanir Bónus

Bónus skartar 33 verslun víðsvegar um landið, 20 verslanir eru á höfuðborgarsvæðinu og 13 á landsbyggðinni.

Finna verslun Opnunartími

Láttu heyra í þér

Bónus vill endilega heyra í þér ef þú ert með ábendingar, fyrirspurnir, hrós, kvörtun eða eitthvað annað. Boðleiðir hjá okkur eru stuttar og við gerum okkar besta að þjónusta þig.

Hafa samband