Persónuverndarskilmálar fyrir Barnabónus

  1. Um þetta skjal
    1. Í þessu skjali (hér nefndir persónuverndarskilmálarnir) er að finna upplýsingar um þá vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram þegar viðskiptavinur (hér þú, umsækjandi eða tilvonandi foreldri) þiggur þjónustuna okkar, Barnabónus. Við erum Bónus, kt. 450199-3389 (hér nefnt seljandi eða við), Norðlingabraut 2, 110 Reykjavík, s. 563-5000. Við erum smásölufyrirtæki í eigu félagsins Hagar verslanir ehf., kt. 470710-0390.
    2. Barnabónus er þjónusta sem við bjóðum þeim viðskiptavinum okkar upp á sem eiga von á barni og felst í að gefa þeim öskju með safni af nokkrum vörum sem gagnast nýfæddum börnum sem og fereldrum (hér nefnd þjónustan). Til að nota þjónustuna auðkennir tilvonandi foreldri sig með rafrænum skilríkjum og skráir sig á skráningarsíðu þjónustunnar, tekur við staðfestingarpósti og framvísar QR-kóða úr honum í valinni verslun okkar til að fá Barnabónus afhentann. Að auki getur umsækjandi kosið að skrá netfang sitt á lista til að fá upplýsingar um frekari tilboð frá okkur. Þjónustan er algerlega valfrjáls og án kvaða.
    3. Við erum ábyrgðaraðili allrar vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við þjónustuna. Í persónuverndarskilmálunum er fjallað um hvaða persónuupplýsingar við vinnum með í tengslum við þjónustuna, tilgang vinnslunnar og heimildir fyrir henni, miðlun persónuupplýsinga og geymslutíma þeirra, auk ýmissa annarra atriða um þá vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í tengslum við þjónustuna.
  2. Tegundir persónuupplýsinga, tilgangur vinnslunnar og heimildir fyrir henni
    1. Til þess að við getum veitt þér þjónustuna þurfum við að vinna með nokkrar tegundir persónuupplýsinga, í þeim tilgangi að afhenda þér Barnabónus og geta staðfest afhendingu hans. Vinnslan fer fram á grundvelli samþykkis þíns. Þetta eru þær tegundir persónuupplýsinga sem við vinnum með um þig í tengslum við þjónustuna:
    2. Tengiliðaupplýsingar, þ.e. nafn, kennitala og netfang, auk heimilisfangs skv. þjóðskrá: Kennitalan er nauðsynleg til að þú getir auðkennt þig með rafrænum skilríkjum og sótt um Barnabónus. Kennitöluna notum við síðan til að fletta upp nafni þínu og heimilisfangi og forskrá þær upplýsingar í umsóknareyðublaðið. Þessar upplýsingar, auk netfangsins nýtum við síðan til að auðkenna þig í samskiptum þínum við okkur um þjónustuna, til að geta vistað samþykki þitt fyrir vinnslunni, til að geta aðstoðað þig í tengslum við þjónustuna, svo sem ef vandræði koma upp í tengslum við afhendingu á Barnabónus eða spurningar vakna í tengslum við hana. Þá vinnum við með heimilisfang þitt til að staðreyna hvort við getum boðið þér upp á heimsendingarþjónustu eður ei. Kjósir þú að samþykkja þessa skilmála og sækja um þjónustuna mun þessi vinnsla persónuupplýsinga fara fram og það á grundvelli þess frjálsa og upplýsta samþykkis þíns og eru sendar í vöru- og bókhaldskerfi okkar til að hægt sé að afhenda þér viðeigandi eintak af Barnabónus. Ef þú óskar eftir að við bætum netfangi þínu á lista okkar yfir þá sem við sendum upplýsingar um tilboð í verslunum okkar þá munum við senda þér slík tilboð og nýta heimilisfang þitt til að leitast við að tilboðin endurspegli hvað sé í boði í verslunum í þinni heimabyggð. Við vinnum ekki frekar með fyrrgreindar tengiliðaupplýsingar með persónugreinanlegum hætti.
    3. Upplýsingar um afhendingu á Barnabónus, þ.e. í hvaða verslun okkar þú óskar eftir að fá Barnabónus afhentann, hversu marga Barnabónus þú óskar eftir, auk QR-kóða fyrir móttöku Barnabónus: Við vinnum með þessar upplýsingar til að geta veitt þér þjónustuna og afhent Barnabónus og til að geta brugðist við ef gjöfin reynist gölluð eða afhendingin tekst ekki sem skyldi. Loks vinnum við með þessar upplýsingar til að hafa eftirlit með því að kerfi okkar virki rétt og þjónustan uppfylli væntingar þínar og kröfur okkar, auk þess að gefa okkur færi á að lagfæra þegar svo reynist ekki vera. Við vinnum því með þessar upplýsingar í samræmi við samþykki þitt. Við vinnum ekki frekar með framangreindar upplýsingar um notkun þína á þjónustunni með persónugreinanlegum hætti.
    4. Auk þess að vinna með persónuupplýsingar notum við margs konar ópersónugreinanlegar upplýsingar til að stýra álagi á kerfi okkar og til að tryggja uppitíma og rétta virkni þjónustunnar, t.d. tölfræðilegar upplýsingar um hvenær viðskiptavinir okkar versla hvaða vörur o.s.frv. Engar slíkar upplýsingar er hægt að rekja til tiltekins viðskiptavinar heldur er einungis um að ræða ópersónugreinanlegar upplýsingar um hópa viðskiptavina.
  3. Miðlun persónuupplýsinga
    1. Þeim persónuupplýsingum um þig sem við vinnum með vegna þjónustunnar miðlum við ekki til þriðja aðila, svo sem til utanaðkomandi vinnsluaðila til dæmis til geymslu eða bókhaldsþjónustu, nema í eftirtöldum tilvikum:
    2. Skráningarsíða fyrir þjónustuna er hýst hjá vefþjónustuaðila okkar en upplýsingar sem eru færðar þar í eyðublað eru ekki vistaðar þar heldur sendar þaðan inn í vöru- og bókhaldskrefi okkar eins og að framan greinir.
    3. Bókhaldsgögn eru afhent innlendum endurskoðendum okkar eftir því sem þeir kunna að óska eftir lögum samkvæmt.
    4. Við áskiljum okkur rétt til að hlíta fyrirmælum þar til bærra íslenskra dómstóla og eftirlitsstofnana um afhendingu gagna, þar á meðal þeirra sem kunna að innihalda persónuupplýsingar.
  4. Geymslutími
    1. Geymslutími þeirra persónuupplýsinga sem við vinnum með ræðst af þeim tilgangi sem þeirra er aflað í og þeirri heimild sem vinnslan byggist á. Þannig geymum við bæði tengiliðaupplýsingar þínar og upplýsingar um afhendingu á Barnabónus þar til afhendingu er farsællega lokið.
    2. Innan hæfilegs tíma frá því eyðum við öllum þeim persónuupplýsingum þínum sem við höfum unnið með í tengslum við vinnsluna nema að því marki sem nauðsynlegt er til að geta staðfest afhendinguna, til afstemmingar og í samræmi við lagaskyldur, einkum ákvæða í lögum um bókhald í lögum, þ.e. nú í minnst 7 ár en ekki lengur en í 10 ár.
  5. Réttindi þín
    1. Þar sem við vinnum, eins og kemur fram hér að framan, með persónuupplýsingar um þig þá hefur þú margs kyns réttindi sem mikilvægt er að þú fáir upplýsingar um:
    2. Þú átt rétt á að óska eftir aðgangi að og afriti af persónuupplýsingum þínum hjá okkur, láta okkur leiðrétta þær ef þær eru rangar eða villandi eða láta okkur eyða þeim ef við höfum ekki lengur heimild til að vinna með þær. Þessum réttindum er nánar lýst í lögum um persónuvernd, sbr. nú 17. og 20. gr. laga nr. 90/2018, Þá átt þú samkvæmt síðarnefndu lagagreininni rétt á að flytja eigin gögn eða að við takmörkum vinnslu persónuupplýsinga um þig, að uppfylltum nánar tilteknum skilyrðum. Þú átt einnig rétt á að andmæla vinnslunni skv. 21. gr. laganna.
    3. Þú getur hvenær sem er sent okkur fyrirspurn eða kvörtun vegna vinnslunnar, á netfangið [email protected]. Þá átt þú rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd vegna vinnslunnar. Skrifstofa hennar er að Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík og netfang hennar er [email protected].
  6. Gildandi lög og samningsvarnarþing
    1. Um persónuverndarskilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi dómsmál um ágreining milli aðila í tengslum við þá skal það mál rekið fyrir héraðsdómi Reykjavíkur.
    2. Persónuverndarskilmálarnir eru ávallt aðgengilegar á vefsíðu okkar, https://bonus.is/skilmalar/. Við áskiljum okkur rétt til að breyta þeim án fyrirvara og þarf þá að samþykkja hina uppfærðu skilmála til að nota þjónustuna. Í skilmálunum kemur ávallt fram hvenær núgildandi útgáfa tók gildi.
    3. Þessi útgáfa persónuverndarskilmálanna er frá 13. mars 2025 og gildir um alla vinnslu sem á sér stað frá og með þeim degi.