Barnabónus
Fæðingarþunglyndi
Það er mikilvægt fyrir alla foreldra að vera opin fyrir einkennum fæðingarþunglyndis. Það er mjög miklvægt að báðir foreldrar séu í góðu standi svo þið séuð í stakk búin til að veita barninu ykkar þá ást og umhyggju sem það þarf.
Fólk sem hefur sögu um kvíða, þunglyndi eða bípolar eru útsettara fyrir því að fá fæðingarþunglyndi. Það skiptir mjög miklu máli að ræða líðan sína við sína nánustu og leita sér aðstoðar, ef ykkur grunar að þið glímið við slíkt. Einkenni fæðingaþunglyndis eru sorg, vonleysistilfinning, mikill grátur, mikill kvíði (oft gagnvart heilsu barnsins) og svefnvandamál. Hafið samband við heilsugæslu ef þið hafið áhyggjur en ómeðhöndlað þunglyndi getur haft skaðleg áhrif á þroska barns og tengslamyndun.
