Umhverfið og ábyrgð
Pappi hefur verið flokkaður í Bónus frá fyrsta degi, þegar fyrsta verslunin opnaði í Skútuvogi árið 1989. Hjá okkur snúast umhverfismálin um það sama og verðið: ekkert bruðl.

Kolefnisbinding
Bónus var fyrsta matvöruverslunin til að reikna út losun frá rekstrinum og binda kolefni á móti henni, fyrst fyrir rekstrarárið 2018.
Bindingin er unnin með Yggdrasil Carbon, sem gróðursetur tré fyrir hönd Bónus með vottuðum kolefniseiningum samkvæmt Skógarkolefnisstaðli. Bónus styrkir einnig verkefni um að safna og sá birkifræjum til að rækta upp birkiskóga á Íslandi.

Flokkun úrgangs
Pappi hefur verið aðskilinn frá öðrum úrgangi frá fyrsta degi og í dag ber hver verslunarstjóri ábyrgð á flokkuninni í sinni verslun.
Hlutfall flokkaðs úrgangs hækkar ár frá ári og sífellt minna fer í urðun. Terra sér um að koma efninu aftur inn í hringrásina.

Saman gegn matarsóun
Bónus hefur frá upphafi selt útlitsgallaðar vörur og vörur á síðasta snúningi með verulegum afslætti.
Ferskur kjúklingur, lambakjöt og nautakjöt lækkar sjálfkrafa við kassann um 30% daginn fyrir síðasta söludag og 50% fyrir síðasta neysludag. Birgjar fá líka daglegar söluupplýsingar fyrir hverja verslun, sem dregur úr sóun á öllum stigum.

Minna plast
Bónus var fyrsta matvöruverslunin til að hætta sölu á hefðbundnum plastpokum og býður í staðinn upp á poka sem brotna niður í náttúrunni.

Orka og kæling
Nýjar og endurhannaðar verslanir nota íslenskan, umhverfisvænan kælimiðil í stað freons, LED lýsingu og lokaða kæla og frysta.
Það hefur sparað verslunum allt að helming rafmagnsins, sem er gott fyrir umhverfið og heldur verðinu niðri.
Sjálfbærniskýrslur
Ítarlegar tölur um umhverfis- og samfélagsmál Bónus.
