Barnabónus

Barnið fyrstu dagana

Eins og ég nefndi hér áður er barnið oft mjög þreytt fyrsta daginn eftir fæðingu, en börnin fara svo að vakna meira og drekka mjög ört fyrstu dagana. Það getur verið gott að undirbúa sig á meðgöngu og horfa á myndbönd á youtube af börnum sem eru að farin að sýna merki þess að vilja fá að drekka, til að þekkja vel þessi merki og bregaðst við þeim.

Börn gráta og það er eðlilegt að börn gráti án þess að nokkuð sé að í allt að 2 klukkutíma á dag, þetta er þeirra leið til þess að tjá sig. Vissulega gráta þau líka þegar þau eru svöng, með blauta bleyju, er of heitt/kalt, vilja láta halda á sér, við of mikið áreiti eða þegar þau finna til.

Ef barn fær hita á fyrstu 3 mánuðum lífsins (yfir 38°C) þarf að leita strax  á bráðamóttöku barna.

Það er eðlilegt að börn vilji vera mikið í fangi og þeim eðlislægt að vera þar, það er ekki hægt að spilla barni með ást. Fylgdu hjartanu þínu alltaf, vertu í núinu og njóttu þessarra yndislegu tíma.

Mamma Hitt foreldrið Fæðingarþunglyndi Tengslamyndun eftir fæðingu Innsæið Þegar heim er komið Barnið fyrstu dagana Vandaðu valið