Barnabónus
Hitt foreldrið
Þó þú hafir ekki fætt barnið, er mikilvægt fyrir þig að leyfa þér að finna alls konar tilfinningar og það er eðlilegt að þú sért þreytt/ur. Það er mikilvægt fyrir þig að tala opinskátt um tilfinningar þínar og þarfir. Oft eru báðir foreldrar þreyttir og stressaðir svo samskiptin geta orðið krefjandi og mikilvægt er að tala skýrt saman. Þið eruð bæði að aðlagast nýju hlutverki og hormónabreytingar, svefnleysi og nýjar áskoranir geta reynt mjög á sambandið.
Þú þarft líka að komast út úr húsi og leggja þig þegar þú ert þreytt/ur. Það er mikilvægt að þið takið frá tíma fyrir ykkur, parið, komist aðeins út úr húsi, en hamingjusamir foreldrar eiga hamingjusöm börn. Passið upp á nándina og takið utan um hvort annað og hrósið hvort öðru. Talið um þá hluti sem mættu betur fara, svo þeir verði ekki óviðráðanlegir.
Það er ekki aðeins í verkahring makans að skipta á kúkableyju og rétta taubleyjur, en það er svo margt sem þú getur gert elsku pabbi/mamma til fá náinn tíma með barninu. Þú gætir verið sá/sú sem sér um háttatímann, um að gera að koma sér strax upp rútínu fyrir svefninn. Þú getur farið í sturtu/bað með barninu, haft það í burðarsjali, en það er stundum kallað „brjóstagjöf“ hins foreldrisins, en þar færðu mikla nánd. Þú gætir nuddað barnið eftir bað og lesið fyrir það og sungið, það gæti verið ykkar tími.
