Barnabónus

Vandaðu valið

Það ganga listar á netinu um hvað þarf að kaupa fyrir komu barns, á þessum listum er oft bróðurhlutinn eitthvað sem er óþarfi, er notað í stutta stund og væri hægt að kaupa notað eða fá lánað. Ég mæli með að allir foreldrar horfi á myndina „A life on our plantet“ áður en þau fara af stað að kaupa allt fyrir barnið. Börn þurfa að eiga góðan bílstól, ég mæli með að skoða vel þá dóma sem stóllin fær. Gott er að skoða útkomu úr ADAC prófi og plúsprófið (plust test).

Það þarf ekkert að kaupa fyrir brjóstagjöf en ef koma upp vandamál er gott að geta nálgast hluti í næstu Bónusverslun, eftir ábendingu frá fagaðila.

Mamma Hitt foreldrið Fæðingarþunglyndi Tengslamyndun eftir fæðingu Innsæið Þegar heim er komið Barnið fyrstu dagana Vandaðu valið