Skilareglur Bónus
Gölluðum vörum fæst skilað gegn framvísun kassakvittunar í 14 daga frá dagsetningu kassastrimils og getur viðskiptvinurinn valið hvort hann fær samskonar vöru í staðinn eða inneignarnótu.
Kælivörum fæst ekki skilað þar sem kælikeðja gæti hafa rofnað.
Persónuvernd:
Farið er með allar persónuupplýsingar sem Bónus móttekur sem algjört trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu. Kaupanda gefst hins vegar kostur á að fá send tilboð í tölvupósti og mun seljandi þá aðeins nota þær upplýsingar sem til þess þarf s.s. póstfang nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Úrlausn vafamála
Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt. Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárskaupa sem hýst er af Neytendastofu. Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda .
Þjónusta og upplýsingar
Kaupanda er bent á að senda okkur skilaboð með öllum þeim upplýsingum er varða kaupin, í gegnum vefsíðu okkar, með því að smella á flipann „Hafa Samband“ til að fá úrlausn á því sem hann vantar. Kaupandi getur einnig leitað í verslun okkar til að fá svör eða einfaldlega hringt í aðalsímanúmer okkar 5279000 þar sem honum verður vísað á réttan stað.
Annað:
Bónus tekur ekki ábyrgð á röngum verðum sem kunna að vera inná síðunni. Bónus áskilur sér rétt til þess að hætta við pöntun komi í ljós að varan hafi verið vitlaust verðmerkt.
Útgáfa skilmála númer: 1.0