Við lækkum verð á um 1.000 vörum hjá Bónus

Um 1.000 vörur lækka

Frá og með 28. september 2026 lækkum við verð á um 1.000 vörum um 2%. Lækkunin gildir í öllum 33 verslunum Bónus til og með 31. desember 2026.

Leitaðu að merkingunum í hillunum

Lækkunin nær til fjölbreyttra vara fyrir heimilið: almennrar hilluvöru, kæli- og frystivöru, drykkjarvara, hreinlætisvara og snyrtivara. Vörurnar eru sérstaklega merktar með hillumerkingum svo auðvelt sé að finna þær.

Meðal vörumerkja sem lækka í verði

Euro Shopper

Fjölbreyttar vörur til daglegra nota. Að jafnaði ódýrasti kosturinn hjá okkur í sínum vöruflokki.

Salling

Breitt úrval af matvöru og öðrum frábærum vörum fyrir heimilið.

Santa Maria

Meðal annars krydd, sósur og vörur til mexíkóskrar matargerðar.

Garofalo

Ítalskt gæðapasta og aðrar ítalskar vörur.

Semper

Barnamatur og aðrar vörur fyrir yngstu viðskiptavinina.

„Með þessari aðgerð skuldbindum við okkur til að hækka ekki verð á þessum vörum fram að áramótum. Verð getur hins vegar lækkað.“ Björgvin, framkvæmdastjóri Bónus

Spurt og svarað

Nei. Hún nær til um 1.000 vara, sem samsvarar um 15 til 20% af vöruúrvali verslana okkar.

Já, lækkunin gildir í öllum 33 verslunum okkar. Sama vöruverð um allt land er ein af grunnáherslum okkar.

Vörurnar eru sérstaklega merktar með hillumerkingum í verslunum okkar svo auðvelt sé að finna þær.

Nei, verðið hefur þegar verið lækkað og gildir fyrir alla viðskiptavini. Þú þarft ekkert að gera til að njóta lækkunarinnar.

Já, lækkunin nær til allra vara frá Euro Shopper, Salling, Santa Maria, Garofalo og Semper sem eru í sölu hjá okkur.

Frá 28. september til og með 31. desember 2026.

Já. Verð getur lækkað frekar á tímabilinu, til dæmis ef innkaupsverð lækkar.

Lágt vöruverð hefur verið kjarninn í rekstri Bónus frá upphafi. Þessi tímabundna lækkun er svar okkar við ákalli samfélagsins um að ná niður verðbólgu og létta undir með heimilunum. Með því að lækka verð á um 1.000 vörum viljum við leggja okkar af mörkum.

Fleiri skref í átt að lægra vöruverði

Við vinnum stöðugt að því að bjóða hagkvæmari kosti til daglegra innkaupa. Nýtt innkaupasamstarf við danska verslunarfélagið Salling Group hefur einnig skilað ódýrari vörum í hillurnar okkar.

Hundruð nýrra vara hafa komið í verslanir okkar á árinu, að stórum hluta í stað sambærilegra vara. Verð nýju varanna er að meðaltali ríflega 15% lægra en verð sambærilegu varanna sem þær leysa af hólmi.

Þetta er til viðbótar við þá 2% verðlækkun sem tekur gildi 28. september.

Ennfremur má finna um 1.800 vörur í Bónus sem eru í dag á sama verði og í september í fyrra og um 850 vörur eru ódýrari en þá.

Finndu þína Bónus verslun

Finna næstu verslun