Listi yfir æskilegt birgðahald heimila í heimsfaraldri

Dæmi um matvörur með langt geymsluþol:

  • Niðursuðuvörur tilbúnar til neyslu, kjötréttir, fiskréttir, grænmeti, ávextir, baunir og súpur.
  • Grænmetissúpur og kartöflumús í pakka.
  • G-mjólk og ávaxtasafi með langt geymsluþol.
  • Kornvörur, pasta og hrísgrjón.
  • Morgunkorn, múslí og haframjöl.
  • Hrökkbrauð og kex.
  • Þurrkaðir ávextir.
  • Hnetusmjör, hnetur.
  • Matarolía.  
  • Ungbarnafæða á krukkum, ungbarnagrautar og ungbarnamjólk, ef ungbarn á heimilinu.          
  • Önnur matvara með langt geymsluþol.          
  • Gæludýrafóður, ef gæludýr er á heimilinu.   
Niðurhala lista yfir æskilegt birgðarhald heimila í heimsfaraldri

Tékklisti til heimila í afkvíun eða sóttkví

Tékklisti fyrir heimili sem eru í einangrun í eina viku

Einn fullorðinn

Þurrvörur

  • 250 g haframjöl   
  • 100 g múslí
  • 1 pakki af grófu hrökkbrauði (500 g)
  • 1 pakki kex (400 g)
  • ½ pakki kartöflumúsaduft (50 g, 2 skammtar, með stroganoff og pylsum)
  • 125 g hrísgrjón (hýðis/hvít, með niðursoðnum baunum og fiskibollum)     
  • 100 g pasta (heilhveiti/venjulegt, með túnfisk og grænmeti)
  • ½ stór poki þurrkaðir ávextir blandaðir (250 g)
  • 100 g hnetur (ekki fyrir þriggja ára og yngri, athuga hættu á að standi í hálsi barna)
  • ¼ pk stroganoff/annar þurrblöndupakki (notist með fersku kjöti og kartöflumús)
  • ½ pk pastaréttur með kjöti þurrvara í pakka (notist eitt og sér)
  • ½ pk grænmetissúpa í pakka (t.d. aspas, blómkál, annað)
  • 50 g strásykur (eða lítill pakki)
  • Kaffi og te

Ferskar vörur

  • 1 L súrmjólk/léttsúrmjólk/ab-mjólk/létt ab-mjólk
  • ½ pakki smjörvi (150 g)
  • 500 g ostur
  • 150 g nautagúllas, hakk eða annað ferskt kjöt
  • 1 stk „skyndiréttur“ (t.d. hakkbollur)
  • 1,0–1,25 kg ferskt grænmeti
  • t.d. 1 pakki tómatar, 2–3 paprikur og 1 agúrka
  • 1 samlokubrauð gróft (alls u.þ.b. 700 g)        

Niðursuðuvara/geymsluþolin vara

  • 1 L G-mjólk
  • 1,5 L ávaxtasafi 100% hreinn (með löngu geymsluþoli)
  • ½ lítil ferna ávaxtagrautur (250 ml)
  • ½ pakki lifrarkæfa (u.þ.b. 100 g)
  • ½ lítill pakki pylsur (2,5 stk.)
  • ½ krukka hnetusmjör (u.þ.b. 100 g)
  • ½ krukka maríneruð síld, lítil (u.þ.b. 60 g)
  • ½ dós túnfiskur í vatni/olíu (90 g) (notist með pasta)
  • ½ lítil dós niðursoðnar fiskibollur í dós (u.þ.b. 200 g með öllu í dósinni)
  • ½ dós bakaðar baunir í tómatsósu (u.þ.b. 200 g)
  • 1 dós blandað niðursoðið grænmeti, (480 g)
  • 250 g niðursoðnir ávextir
  • 50 ml matarolía   
  • 50 g berjasulta

 

3. útgáfa, Embætti landlæknis, svið lýðheilsu heilbrigðis, febrúar 2020.

Tékklisti fyrir heimili sem eru í einangrun í eina viku

6-12 ára (2.000 kcal/dag)

Þurrvörur

  • 200 g haframjöl   
  • 85 g múslí
  • 0,85 pakki af grófu hrökkbrauði (400 g)         
  • 0,85 pakki kex (330 g)
  • 40 g kartöflumúsaduft (2 skammtar, með stroganoff og pylsum)
  • 100 g hrísgrjón (hýðis/hvít, með niðursoðnum baunum og fiskibollum)     
  • 85 g pasta (heilhveiti/venjulegt, með túnfisk og grænmeti)
  • 200 g þurrkaðir ávextir blandaðir
  • 85 g hnetur (ekki fyrir eins árs og yngri, athuga hættu á að standi í hálsi barna)
  • ¼ pk stroganoff/annar þurrblöndupakki (notist með fersku kjöti og kartöflumús)
  • ½ pk pastaréttur með kjöti þurrvara í pakka (notist eitt og sér)
  • 0,5 pk grænmetissúpa í pakka (t.d. aspas, blómkál, annað)
  • 40 g strásykur (eða lítill pakki)

Ferskar vörur

  • 0,85 L súrmjólk/léttsúrmjólk/ab-mjólk/létt ab-mjólk
  • 2 L léttmjólk (til drykkjar fyrir börnin)
  • 125 g smjörvi
  • 415 g ostur
  • 125 g nautagúllas, hakk eða annað ferskt kjöt
  • 1 stk „skyndiréttur“ (t.d. hakkbollur)
  • 1 kg ferskt grænmeti
  • t.d. 1 pakki tómatar, 2 paprikur og 1 agúrka
  • 0,85 samlokubrauð gróft (alls u.þ.b. 600 g)

Niðursuðuvara/geymsluþolin vara

  • 0,85 L G-mjólk
  • 1,250 L ávaxtasafi 100% hreinn (með löngu geymsluþoli)
  • Tæplega ½ lítil ferna ávaxtagrautur (200 ml)
  • Tæplega ½ pakki lifrarkæfa (u.þ.b. 85 g)
  • 2 pylsur
  • Tæplega ½ krukka hnetusmjör (u.þ.b. 85 g)
  • Tæplega ½ krukka maríneruð síld, lítil (u.þ.b. 50 g)
  • Tæplega ½ dós túnfiskur í vatni/olíu (75 g) (notist með pasta)
  • Tæplega ½ lítil dós niðursoðnar fiskibollur í dós (u.þ.b. 170 g með öllu í dósinni)
  • Tæplega ½ dós bakaðar baunir í tómatsósu (u.þ.b. 170 g)
  • 0,85 dós blandað niðursoðið grænmeti (400 g)
  • 200 g niðursoðnir ávextir
  • 40 ml matarolía   
  • 40 g berjasulta

 

3. útgáfa, Embætti landlæknis, svið lýðheilsu heilbrigðis, febrúar 2020.

Tékklisti fyrir heimili sem eru í einangrun í eina viku

1-5 ára (1.200 kcal/dag)

Þurrvörur

  • 125 g haframjöl   
  • 50 g múslí eða annað morgunkorn með súrmjólk
  • ½ pakki af grófu hrökkbrauði (250 g)
  • ½ pakki kex (200 g)
  • ¼ pakki kartöflumúsaduft (25 g, 2 skammtar, með stroganoff og pylsum)
  • 60 g hrísgrjón (hýðis/hvít, með niðursoðnum baunum og fiskibollum)     
  • 50 g pasta (heilhveiti/venjulegt, með túnfisk og grænmeti)
  • ¼ stór poki þurrkaðir ávextir blandaðir (125 g)
  • ¼ pk stroganoff/annar þurrblöndupakki (notist með fersku kjöti og kartöflumús)
  • ¼ pk pastaréttur með kjöti þurrvara í pakka (notist eitt og sér)
  • ¼ pk grænmetissúpa í pakka (t.d. aspas, blómkál, annað)
  • 25 g strásykur (eða lítill pakki)

Ferskar vörur

  • ½ L súrmjólk/léttsúrmjólk/ab-mjólk/létt ab-mjólk
  • 2 L léttmjólk/nýmjólk (til drykkjar fyrir börnin)
  • ¼ pakki smjörvi (75 g)
  • 250 g ostur
  • 75 g nautagúllas, hakk eða annað ferskt kjöt
  • ½ „skyndiréttur“ (t.d. hakkbollur)
  • ½ kg ferskt grænmeti
  • t.d. ½ pakki tómatar, 1-2 paprikur og ½ agúrka
  • ½ samlokubrauð gróft (alls u.þ.b. 350 g)

Niðursuðuvara/geymsluþolin vara

  • 0,5 L G-mjólk
  • 750 ml ávaxtasafi 100% hreinn (með löngu geymsluþoli)
  • ¼ lítil ferna ávaxtagrautur (125 ml)
  • ¼ pakki lifrarkæfa (u.þ.b. 50 g)
  • 1,5 pylsur
  • ¼ krukka hnetusmjör (u.þ.b. 50 g)
  • ¼ dós túnfiskur í vatni/olíu (45 g) (notist með pasta)
  • ¼ lítil dós niðursoðnar fiskibollur í dós (u.þ.b. 100 g með öllu í dósinni)
  • ¼ dós bakaðar baunir í tómatsósu (u.þ.b. 100 g)
  • ½ dós blandað niðursoðið grænmeti (240 g)
  • 125 g niðursoðnir ávextir
  • 25 ml matarolía   
  • 25 g berjasulta

 

3. útgáfa, Embætti landlæknis, svið lýðheilsu heilbrigðis, febrúar 2020.

Tékklisti fyrir heimili sem eru í einangrun í eina viku

Tveir fullorðnir og tvö börn, 1-5 ára og 6-12 ára.

Þurrvörur

  • 1 kg haframjöl
  • 350 g múslí
  • 4 pakkar af grófu hrökkbrauði (1 kg)
  • 4 pakkar kex (400 g)
  • 2 pk kartöflumúsaduft (200 gr, 10 skammtar, með stroganoff og pylsum)
  • 600 g hrísgrjón (hýðis/hvít, með niðursoðnum baunum og fiskibollum og í hrísgrjónagraut)
  • 350 g pasta (heilhveiti/venjulegt, með túnfisk og grænmeti)
  • 1 kg stór poki þurrkaðir ávextir blandaðir
  • 300 g hnetur (ekki fyrir þriggja ára og yngri, athuga hættu á að standi í hálsi barna)
  • 1 pk stroganoff/annar þurrblöndupakki (notist með fersku kjöti og kartöflumús)
  • 2 pk pastaréttur með kjöti þurrvara í pakka (notist eitt og sér)
  • 4 pk grænmetissúpur í pakka (t.d. aspas, blómkál, annað)
  • 200 g strásykur (eða lítill pakki)
  • Kaffi og te

Ferskar vörur

  • 4 L súrmjólk/léttsúrmjólk/ab-mjólk/létt ab-mjólk
  • 4 L léttmjólk/nýmjólk (til drykkjar fyrir börnin)
  • 2 pakkar smjörvi
  • 2 kg ostur
  • 500 gr. nautagúllas, hakk eða annað ferskt kjöt
  • 4 stk „skyndiréttur“ (t.d. hakkbollur)
  • 4 kg ferskt grænmeti
  • t.d. 4 pakkar tómatar, 8 paprikur og 3 agúrkur
  • 3,5 samlokubrauð gróft (u.þ.b. 2,5 kg)

Niðursuðuvara/geymsluþolin vara

  • 4 L G-mjólk
  • 5 L ávaxtasafi 100% hreinn (með löngu geymsluþoli)
  • 1 stór ferna ávaxtagrautur
  • 2 pakkar lifrarkæfa
  • 1 stór pakki pylsur (10 stk)
  • 1 krukka hnetusmjör (225 g)
  • 1 krukka maríneruð síld, lítil (125 g)
  • 2 dósir túnfiskur í vatni/olíu (185 g) (notist með pasta)
  • 1 stór dós niðursoðnar fiskibollur í dós
  • 2 dósir bakaðar baunir í tómatsósu
  • 3 dósir blandað niðursoðið grænmeti, (alls 960 g)
  • 500 g niðursoðnir ávextir
  • 150 ml matarolía (eða lítil flaska)
  • 200 g berjasulta (eða ein krukka

3. útgáfa, Embætti landlæknis, svið lýðheilsu heilbrigðis, febrúar 2020.

Ungbörn, 0-1 árs

Nauðsynlegt er að taka sérstakt tillit til barna á fyrsta aldursári ef þau eru á heimilinu, sérstaklega þeirra barna sem ekki eru á brjósti. Fyrir börn yngri en fjögurra mánaða sem ekki eru á brjósti þarf eingöngu að gera ráð fyrir ungbarnamjólk (þurrmjólk eða tilbúin blanda). Fyrir 4–6 mánaða börn sem ekki eru á brjósti getur þurft til viðbótar við ungbarnamjólk að gera ráð fyrir ungbarnagraut og e.t.v. ungbarnamauki á krukku (ávaxta- og grænmetismauk), allt eftir þörfum barnsins. Gert er ráð fyrir krukkumat við þessar aðstæður. Það getur einnig dugað fyrir 6–9 mánaða gamalt barn nema þá bætast við til viðbótar við ávaxta- og grænmetismauk fleiri tegundir af mauki t.d. kjöt og fiskur og í meira magni.

 

3. útgáfa, Embætti landlæknis, svið lýðheilsu heilbrigðis, febrúar 2020.

Hér að ofan má finna ráðgefandi lista yfir áætlaða matarþörf einstaklings og fjölskyldna af mismunandi stærð, í eina viku samkvæmt Embætti landlæknis.

Til baka