Afmælisvika Ódýrast vikunnar

Ódýrast vikunnar eins árs

Ódýrast vikunnar fagnar eins árs afmæli en af því tilefni bjóðum við sérvalin afmælistilboð í þessari viku. Um er að ræða vörur sem hafa verið meðal þeirra vinsælustu á tímabilinu. 

Ódýrast vikunnar var kynnt til sögunnar í ársbyrjun 2025 með það að markmiði að gera verðlækkanir skýrari og aðgengilegri fyrir heimilin í landinu. Í hverri viku eru valdar vörur settar á sérstaklega hagstætt verð til að auðvelda fólki að halda utan um dagleg innkaup og ná fram raunverulegum sparnaði.

Framtakið hefur samkvæmt útreikningum skilað íslenskum heimilum yfir 300 milljóna króna sparnaði á fyrsta starfsári. Að sögn Björgvins Víkingssonar, framkvæmdastjóra Bónus, byggir árangurinn á öflugri teymisvinnu og góðu samstarfi við birgja, með það markmið að halda vöruverði niðri og standa með heimilunum í landinu.

Tilboðin má sjá hér að neðan: 

Öll verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur.