Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónus, afhenti Höllu Þorvaldsdóttur, framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins, ávísun að styrknum á dögunum.
Samstaða sem skiptir máli
Í ár tók Bónus í fyrsta sinn þátt í Bleiku slaufunni, árlegu átaki Krabbameinsfélagsins sem miðar að því að auka vitund og stuðning í baráttunni gegn brjóstakrabbameini.
Viðskiptavinir Bónus sýndu mikinn samhug og lögðu samtals tæpar fjórar milljónir króna til málefnisins með framlögum í sjálfsafgreiðslukössum verslana um land allt. Bónus bætti einni milljón króna við og nam heildarstyrkurinn því fimm milljónum króna, sem hefur verið afhentur Krabbameinsfélaginu til stuðnings rannsóknum, fræðslu og aðstoð við fólk sem greinist með krabbamein.
„Bleika slaufan er samfélagslegt málefni sem snertir okkur öll. Það er einstakt að sjá hversu margir vilja leggja sitt af mörkum,“ segir Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónus.
„Við viljum þakka viðskiptavinum okkar kærlega fyrir frábær viðbrögð og hlýjan stuðning.“
Bónus er stolt af því að hafa tekið þátt í þessu mikilvæga samfélagsverkefni og þakkar öllum sem tóku þátt fyrir að sýna samstöðu sem skiptir máli. Saman getum við haft raunveruleg áhrif.

