Barnabónus opnar fyrir umsóknir 2026 – 90% nýbura á Íslandi þegar fengið pakka
Eftir frábærar viðtökur og mikla eftirspurn hefur Bónus nú opnað fyrir umsóknir fyrir árið 2026.
Frá því við hófum verkefnið fyrr á árinu hefur Bónus nú afhent rúmlega 4.000 Barnabónusa til nýbakaðra foreldra um allt land og þúsund til viðbótar bíða afhendingar á næstu dögum. „Við erum ótrúlega þakklát fyrir viðbrögðin en þetta jafngildir um 90% allra fæðinga á Íslandi árið 2025!“ er haft eftir Pétri Sigurðssyni, verkefnastjóra Barnabónus.
„Við höfum fundið fyrir gríðarlegum hlýhug og þakklæti frá foreldrum og samfélaginu í heild, sem hefur farið fram úr okkar björtustu vonum. Nýbakaðir foreldrar þurfa á auknum stuðningi að halda fyrstu mánuðina og við erum stolt af því að geta létt undir og lagt okkar af mörkum á þessum mikilvæga tíma,“ bætir Pétur við.
Barnabónus er veglegur pakki sem inniheldur meðal annars ungbarnagalla, bleiur, krem og lekahlífar ásamt fleiri nauðsynjavörum fyrir nýbura og foreldra. Markmið okkar er að létta á fjárhagslegri byrði fyrstu mánuðina eftir fæðingu og stuðla að auknum jöfnuði meðal barnafjölskyldna, í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna en heildarverðmæti pakkanna nemur um 150 milljónum króna.
Pakkarnir eru framleiddir hér á Íslandi og settir saman af sjálfboðaliðum sem gefa vinnu sína til styrktar Gleym mér ei, samtökum sem styðja foreldra sem hafa misst á meðgöngu eða í/eftir fæðingu.
„Það er þessi samstaða og samhugur sem gerir Barnabónus að veruleika og við hlökkum til að halda áfram verkefninu með ykkur á næsta ári,“ segir Pétur að lokum.
Yndislegt verkefni
,,Þetta er yndislegt verkefni og við erum afar þakklátar fyrir stuðninginn við fólkið okkar. Það er fjöldi sjálfboðaliða sem vinnur að því að fylla kassana af varningi og stuðningur Bónus er auðvitað ómetanlegur fyrir okkur.
Gleym mér ei gefur 60-90 minningarkassa á ári til allra þeirra foreldra sem missa börnin sín á meðgöngu eða fljótlega eftir fæðingu. Við sem störfum eða sitjum í stjórn félagsins höfum flestar fengið minningarkassa og vitum hversu dýrmætir þeir eru á þessum erfiðasta tíma lífs manns. Okkur þykir því mjög táknrænt að vinnan á bak við Barnabónus hjálpi okkur að fjármagna minningarkassana,” segir Kolbrún Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Gleym mér ei.
Pétur Sigurðsson, verkefnastjóri Barnabónuss, og Kolbrún Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Gleym mér ei, takast í hendur fyrir miðri mynd og þar má einnig sjá Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóra Bónuss, sem stóðu vaktina ásamt fleiri starfsmönnum Bónuss og fjölda sjálfboðaliða við að fylla Barnabónuskassana af varningi.
Verðandi og nýbakaðir foreldrar um allt land geta sótt um Barnabónus án endurgjalds á heimasíðu Bónus: https://bonus.is/barnabonus/
*Umsóknir eru samþykktar í samræmi við fæðingarmánuð barnsins. Ef barnið á að fæðast í febrúar 2026, þá er umsókn samþykkt og afhending fer fram í sama mánuði. Hér að neðan er hægt að fylgjast með hvernig ferlið virkar:

