„Við heyrðum neyðarkallið og ákváðum að bregðast strax við“

Meðfylgjandi mynd var tekin við undirritun viljayfirlýsingarinnar.
Frá vinstri: Pétur Sigurðsson: verkefnastjóri verkefnsins Bónus, Eva Laufey Kjaran, markaðsstjóri Hagkaups, Magnús Scheving, eigandi Latabæjar og Pétur Smári Sigurjónsson, sölustjóri Banana.

Gera grænmeti og ávexti að skemmtilegum og spennandi valkosti

Fyrir skömmu kallaði landlæknir eftir því að grænmeti og ávextir yrðu stærra hlutfall í mataræði barna. Við það tilefni sagði Alma Möller, heilbrigðisráðherra, að við þyrftum að stefna að því að gera holla valkostinn að auðveldasta kostinum.

„Við heyrðum neyðarkallið og ákváðum að bregðast strax við,“ segir Magnús Scheving, eigandi Latabæjar.  Við fundum lausn sem gerir grænmeti og ávexti að spennandi og auðveldum kosti en Latibær á einmitt 30 ára afmæli á þessu ári.“

Lausnin felst í framleiðslu á nýrri vörulínu undir merkjum Latabæjar.

„Lengi hefur vantað vörur sem stuðla að heilbrigðu mataræði barna. Latibær fór í sambærilegt átak fyrir 30 árum sem skilaði sér í 22% aukningu í grænmetis- og ávaxtaneyslu barna. Við trúum því að með því að bjóða upp á hollar matvörur á áhugaverðan og skemmtilegan hátt velji börn grænmeti og ávexti oftar“ segir hann.

„Ábyrgðin á matvælaframleiðendum og smásölum á vöruúrvali í verslunum er mikil. Við vildum því bregðast hratt við nýjum ráðleggingum í mataræði og bjóða barnafjölskyldum upp á hollar vörur á skemmtilegan hátt,“ segir Pétur Smári Sigurgeirsson, sölustjóri Banana.

Íþróttanammi frá Latabæ

Niðurstaðan varð að framleiða íþróttanammi undir merkjum Latabæjar. Vörurnar verða framleiddar af Bönunum og seldar í verslunum Hagkaups og Bónus. Grænmeti, ávextir, mjólkurvörur og fleiri tegundir matvæla verða í sérmerktum umbúðum og hugað er sérstaklega að því að gera íþróttanammið að meira spennandi kosti en sælgeti og aðra óhollustu. Umbúðirnar eru handhægar og innihalda skammta sem henta börnum vel.

„Hagkaup hefur lagt mikla áherslu á að bjóða upp á heilsusamlega kosti fyrir viðskiptavini sína og boðið upp á mjög gott úrval af hollum og ferskum matvælum. Sala á sérmerktri hollustuvöru fyrir börn undir merkjum Latabæjar er kærkomin viðbót“, segir Eva Laufey Kjaran, markaðsstjóri Hagkaups.

Hvetja börn til hreyfingar

Í framhaldinu stendur til að halda heilsuviðburði til að efla hreyfingu barnafjölskyldna. Viðburðirnir henta allri fjölskyldunni og hvetja fjölskyldur til að taka þátt en um leið stuðla að hreyfingu og hollu mataræði.

„Við ætlum ekki að láta staðar numið hér. Við viljum hvetja fjölskyldur til að hreyfa sig um leið og þau velja hollan mat. Með því að búa til viðburði sem höfða til barnafjölskyldna vonumst við til að auka áhuga barna á hreyfingu og um leið gera foreldrum auðveldara með að hvetja þau til dáða,“ segir Pétur Sigurðsson verkefnastjóri verkefnisins Bónus.

Íþróttanammið er væntanlegt í búðir í lok apríl og verður selt í öllum verslunum Bónus og Hagkaups.