Lokaskemmtun Latarbæjarleiksins í Hagkaup Smáralind – Fjölmennt og fjörugt!
Laugardaginn 6. september fór fram glæsileg lokahátíð Latarbæjarleiksins í Hagkaup Smáralind. Viðburðurinn stóð frá kl. 12:00–14:00 og tóku gestir þátt af miklum krafti. Fjölmennt var á svæðinu og ríkti skemmtileg stemning þar sem allir gátu tekið þátt og fagnað frábærri þátttöku í leiknum sem stóð yfir í sumar.
Gestir komu með stigin sín og fengu verðlaun fyrir flottan árangur. Á svæðinu voru Íþróttaálfurinn og Solla stirða sem tryggðu gleði, fjör og hreyfingu fyrir alla fjölskylduna. Einnig var sérstakt lukkuhjól á svæðinu þar sem þátttakendur gátu spreytt sig, og ávaxtabar sem bauð upp á ljúffenga og holla ávexti í verðlaun eftir æfingar.
Lokahátíðin var hin fullkomna leið til að kveðja sumarið með bros á vör og viljum við þakka öllum þeim sem mættu kærlega fyrir komuna. Það var sannarlega gaman að sjá hve margir tóku þátt og gerðu daginn að ógleymanlegri skemmtun!
Við viljum jafnframt hvetja börn og foreldra til að halda áfram að velja ávexti og grænmeti, því holl fæða og hreyfing fara alltaf saman og tryggja gleði og orku fyrir alla fjölskylduna.
Sjá myndir að neðan:
Lokaskemmtun Latarbæjarleiksins í Hagkaup Smáralind 6. september.
