Ingredients
- 4 120 gr Íslandsnaut hamborgarar
- 2 msk tikka masala-mauk
- 2 msk olía
- 4 ananassneiðar
- 8 sneiðar af mangó
- 4 stk naan-brauð
- 4 msk tikka masala-sósa
- Salat
- Laukhringir
- 4 steikt poppadoms
Instructions
- Penslið hamborgara með tikka masala-mauki og geymið við stofuhita í 1 klst. Steikið þá síðan í olíu á milliheitri pönnu í 2 mín. á hvorri hlið. Steikið ananas og mangó á sömu pönnu í 1 mín. Hitið naan-brauð í brauðrist, skerið þau síðan til helminga og setjið tikka masala-sósu á neðri helminginn, toppið með salati og lauk. Leggið borgarann þar ofan á, síðan ananas, mangó og poppadoms og síðast hinn helminginn af naan-brauðinu. Berið fram með soðnum hrísgrjónum eða frönskum kartöflum.