Fitjar fara í nýjan búning

Endurbætur og tilboð

Nú hefur verið lokið við endurbætur á verslun okkar á Fitjum og hefur búðin tekið miklum breytingum. Farið var í heildstæða endurröðun, kælarnir teknir í gegn og nýjar hillueiningar settar upp til að bæta flæði og aðgengi.

Greiðsluleiðum hefur jafnframt verið bætt við og er sjálfsafgreiðslulausnin okkar GRIPIÐ & GREITT nú aðgengileg viðskiptavinum þar sem þeir geta tekið skanna við innganginn og skannað vörurnar beint ofan í pokann á leið sinni um verslunina. Þannig fækkar handtökum og verslunarferðin verður einfaldari og hraðari. Lausnin bætist við aðrar afgreiðsluleiðir og er valkostur fyrir þá sem kjósa að afgreiða sig sjálfir.

Verslunin hefur einnig verið skjávædd til að gera upplýsingagjöf skýrari og lifandi, en markmiðið með framkvæmdunum var að bæta upplifun viðskiptavina og gera verslunarferðina enn þægilegri og skilvirkari. 

Í tilefni af nýjum búningi bjóðum við frábær tilboð í dag og út alla helgina – sjá nánar hér að neðan.

Öll verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur.