Íþróttanammi Latabæjar

Íþróttanammi Latabæjar í nýjum umbúðum – skolað og tilbúið til neyslu

Í fyrra hóf Bónus samstarf með Latabæ, Bönunum, Olís og Hagkaup um svokallað íþróttanammi með það að markmiði að gera grænmeti og ávexti að skemmtilegum og aðgengilegum valkosti fyrir börn. Verkefnið fór vel af stað og fór íþróttanammið í sölu í öllum verslunum Bónus og Hagkaups ásamt Olís stöðvum í apríl í fyrra.

Nú hefur vörulínan verið þróuð enn frekar með rýnihópum, bæði foreldrum og börnum, og nýjar vörutegundir, umbúðir og stærðir litið dagsins ljós. Vörurnar eru skolaðar og því tilbúnar til neyslu strax, sem gerir foreldrum og börnum enn auðveldara að velja hollan kost á ferðinni, í nesti eða eftir æfingar.

Í frétt sem birt var í mars í fyrra sagði Magnús Scheving, eigandi Latabæjar: „Við fundum lausn sem gerir grænmeti og ávexti að spennandi og auðveldum kosti.“ Sú sýn er áfram leiðarljós verkefnisins, þar sem áhersla er lögð á að hvetja börn til hollra venja á jákvæðan og skemmtilegan hátt.

Nýja vörulínan var frumsýnd á afmælishátíð Latabæjar um helgina þar sem 3.000 börn og foreldrar komu og hoppuðu og skoppuðu með nýjum íþróttaálfi, Sollu stirðu og Glanna glæp í Háskólabíó.

Íþróttanammið í nýjum umbúðum er nú komið í sölu í Bónus, Hagkaup og Olís og er liður í áframhaldandi átaki um að gera holla valkostinn að einföldum og spennandi kost fyrir barnafjölskyldur.

Magnús Scheving, eigandi Latabæjar, í hugmyndarvinnu fyrir vöruþróun íþróttanammisins.