Ingredients
- 4 stk 120 gr Íslandsnaut hamborgarar
- Steikarkrydd
- Barbeque sósa
- Brie-ostur, sneiddur
- 4 stk hamborgarabrauð
- Majónes
- Salatblöð
- 1 stk tómatur, skorinn í sneiðar
- 1 stk rauðlaukur, skorinn í sneiðar
Instructions
- Steikið eða grillið hamborgara og kryddið strax með góðu steikarkryddi. Smyrjið góðri skvettu af barbeque-sósu yfir borgarana um leið og þeim er snúið og leggið sneiðar af brie-osti ofan á. Borgarinn er tilbúinn fáum mínútum síðar. Smyrjið hamborgarabrauð létt eða þétt með góðu majónesi. Leggið salatblað ofan á neðra brauðið, setjið borgara ofan á og því næst tómat- og lauksneiðar. Setjið brauð ofan á og berið fram.