Bónus semur við KKÍ

Bónus deildin í körfunni

KKÍ og Bónus hafa gert samstarfssamning sín á milli og verður Bónus einn af aðal samstarfsaðilum KKÍ. Úrvalsdeildir karla og kvenna munu nú bera nafn Bónus, Bónus deildin en einnig mun Bónus styðja við landsliðs- og afreksstarf KKÍ.

Markmið samstarfs KKÍ og Bónus er að gera sýnileika Bónus sem mestan í körfuknattleik á Íslandi og hvetja almenning að versla heilsusamlegar vörur. Sérstök áhersla verður á ávexti og grænmeti ásamt öðrum vörum í Bónus og þannig efla lýðheilsu landsmanna enn frekar og mun Bónus því koma með ferska sýn inn í starfsemi KKÍ og körfuboltans á Íslandi.

Fyrsti leikur í Bónus deild kvenna á næsta keppnistímabii hefst 1. október og fyrsti leikur í Bónus deild karla 3. október

Á meðfylgjandi mynd frá vinstri eru þau; Baldur Ólafsson markaðsstjóri Bónus, Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir formaður KKÍ, Björgvin Víkingsson framkvæmdastjóri Bónus og Hannes S. Jónsson framkvæmdastjóri KKÍ