Ný verslun í Holtagörðum

Ný byrjun í Holtagörðum

Bónus opnar nýja matvöruverslun í Holtagörðum laugardaginn 22. júlí klukkan 10:00. Nýja verslunin er um  2.500 fm að stærð eða 40% stærri en gamla verslunina sem nú hefur verið lokað. Verslun Bónus hefur verið í Holtagörðum frá árinu 1994, nýja verslunin verður á sömu hæð en í hinum enda hússins, á móti tveggja hæða bílastæðahúsi og því næg bílastæði að finna.

Mikil áhersla er lögð á að verslunin sjálf skilji eftir sig eins lítið kolefnisfótspor og hægt er. Til að mynda eru kælar og frystar lokaðir og keyrðir áfram af íslenskum umhverfisvænum kælimiðlum í stað freons. Verslunin er lýst upp með LED ljósum sem nota allt af 50% minna rafmagn en hefðbundin ljós og endast líka mun betur, eins má geta þess að hillur verslunarinnar eru að mestu leyti smíðaðar á Íslandi eða endurnýttar úr öðrum verslunum Bónus. 

Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus: „Við kveðjum gömlu Bónus verslunina með söknuði en hún hefur þjónað okkur og okkar viðskiptavinum vel til margra ára. Nýja verslunin er búinn öllu því nýjasta sem verslanir Bónus hafa upp á að bjóða eins og t.d Gripið&Greitt, sjálfsafgreiðslu í bland við hefðbundna afgreiðslukassa, umhverfisvænum kæli og frystibúnaði ásamt orkusparandi lýsingu og betri sorpflokkunaraðstöðu til þess að hægt sé að endurnýta sem mest af þeim umbúðum sem falla til í okkar rekstri.“