Ingredients
- 4 stk 120 gr Íslandsnaut hamborgarar
- 4 stk hamborgarabrauð
- Steiktur laukur (þessi harði sem fer á pylsurnar)
- Tómatsósa
- Sinnep
- Remúlaði
- Rauðkál
- Súrar gúrkur
- 1 laukur, fínt saxaður
Instructions
- Steikið hamborgara á pönnu eða grilli þar til hann er u.þ.b. medium rare. Hitið hamborgarabrauð og setjið á það allt það sem fer á pylsu með öllu á Selfossi, sprautið sósunum yfir og leggið hamborgarann ofan á.