Ingredients
- 4 stk 120 gr Íslandsnaut hamborgarar
- Krydd
- Brie-ostur, skorinn í sneiðar
- 4 stk Fittí bollur
- 4 msk rautt pestó
- 1 dós sýrður rjómi
- 12 stk kirsuberjatómatar, skornir til helminga
- Basilíkulauf
- Klettakál
Instructions
- Grillið hamborgara og kryddið með góðu kjötkryddi. Snúið við og leggið ostsneiðar ofan á rétt í lokin. Gætið þess að ofgrilla ekki hamborgarann, hann á að vera rauður að innan. Hitið Fittí bollur á grillinu (sleppið lokinu – tilgangslaus kolvetni). Hrærið rautt pestó saman við sýrðan rjóma og smyrjið á hamborgarabrauðið í stað hamborgarasósu. Raðið tómötum, klettakáli og basilíkulaufum á borgarann og voila! Tær snilld. Hér er búið að spara nóg af hitaeiningum svo þú getir fengið þér eitt rauðvínsglas með.