Fatnaðinn er hægt að kaupa í nokkrum verslunum Bónus, í Kjörgarði, Smáratorgi, Fitjum, Selfossi, Hveragerði, Borgarnesi og á Akureyri.

,,Gamli Bónus grísinn átti sérstakan stað í hjörtum íslendinga. Eftir að við uppfærðum grísinn þá höfum fengið fjölda fyrirspurna hvort að hægt sé að fá boli og annan fatnað með grísnum. Við ákváðum hreinlega að verða við þessari ósk viðskiptavina og heiðrum nú gamla grísinn með svokallaðri retro línu sem aðeins er fáanleg í svörtu. Vörurnar með nýja grísnum eru heldur í léttari ljósum lit sem passar vel við skæra bleika litinn. Bónus grísinn er samofinn íslenskri menningu og því var tilvalið að fyrsta fatalína Bónus kæmi út rétt fyrir menningarnótt,” segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus.