Takk fyrir að vera til fyrirmyndar

TAKK FYRIR AÐ VERA TIL FYRIRMYNDAR er hvatningarátak tileinkað frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni. Fyrir 40 árum stigu Íslendingar framfaraskref á heimsvísu og voru til fyrirmyndar með því að vera fyrst þjóða til að kjósa konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum, frú Vigdísi Finnbogadóttur.

Á þessum tímamótum er verðugt að staldra við, huga að því sem vel er gert og þakka þeim sem við teljum vera til fyrirmyndar á einn eða annan hátt. Þann 17. júní barst landsmönnum um land allt bréf með yfirskriftinni ,,TAKK FYRIR AÐ VERA TIL FYRIRMYNDAR” sent með Morgunblaðinu. Fleiri eintök af bréfinu er hægt að nálgast víða um landið og meðal annars í Bónus.

Rafræn eintök af bréfinu a fjölmörgum tungumálum má nálgast á heimasíðunni www.tilfyrirmyndar.is.

Hvetjum við þig til að skrifa bréf til fjölskyldu, vina, vinnustaða og annarra sem þú vilt þakka fyrir að vera til fyrirmyndar á einn eða annan hátt

Bréfin má setja ófrímerkt í póst innanlands.

Verið er að setja upp ,,TAKK veggi” víða um land þar sem skemmtilegt er að taka myndir af sér og sínum á og deila á samfélagsmiðlum.
TAKK FYRIR AÐ VERA TIL FYRIRMYNDAR
tilfyrirmyndar.is @tilfyrirmyndar #tilfyrirmyndar