Skógræktin og Landgræðslan hafa tekið höndum saman og óskað eftir stuðningi landsmanna við að breiða út birkiskóga landsins.
Í dag á degi íslenskrar náttúru, þann 16. september, fór átakið á stað til að safna birkifræi sem verður dreift á völdum, beitarfriðuðum svæðum í öllum landshlutum. Forseti Íslands ásamt umhverfisráðherra söfnuðu í sérstaka söfnunaröskju og settu verkefnið formlega á stað.
Hægt er að nálgast söfnunaröskjur úr pappa sem hannaðar voru og prentaðar af Prentmet Oddi í verslunum okkar og er einnig tekið við fræinu í sérstakar tunnur sem Terra umhverfisþjónusta setur upp.
Hægt er að fræðast meira um söfnunina á Söfnum og sáum birkifræi eða á heimasíðu verkefnisins: www.birkiskogur.is
Skellum okkur saman í birkimó! ?