Bónus mun opna nýja verslun á Akureyri

Bónus opnar nýja verslun á Norðurtorgi á Akureyri

Ný matvöruverslun Bónus verður opnuð í verslunarkjarnanum að Norðurtorgi á Akureyri vorið 2022, en samningar hafa verið undirritaðir þar um. Verslunin verður ríflega 2000 m2 að stærð og verður staðsett við hlið verslana Rúmfatalagersins og ILVA sem þegar eru  á Norðurtorgi. Bónus rekur í dag 2 verslanir á Akureyri við Langholt og Kjarnagötu.

Bónus hefur frá stofnun lagt áherslu á lágt matvöruverð fyrir alla landsmenn og umhverfismál. Er öll hönnun og tækjabúnaður nýju verslunarinnar við kælingu matvæla, lýsingu og flokkun sorps valin með það að leiðarljósi að lágmarka umhverfisspor og styðja við sjálfbærni. Vöruframboð Bónus spannar allar meginþarfir heimilishaldsins og í verslunum á Akureyri verður lögð sérstök áhersla á að koma norðlenskri framleiðslu á framfæri til viðskiptavina.

„Við erum afar ánægð með að samningar hafi náðst um verslun á Norðurtorgi sem við lítum á sem framtíðarstaðsetningu í verslun á Norðurlandi.  Með versluninni munum við efla enn frekar þjónustu við íbúa Akureyrar og nærsveita og um leið þess fjölda ferðamanna sem sækir svæðið heim. Á Norðurtorgi eru fyrir öflugar verslanir og opnun Bónus mun styrkja verslunarkjarnann enn frekar þar sem að Bónus býður sama lága verðið um allt land og fjölbreytt vöruúrval. Mjög gott aðgengi verður að versluninni, með fjölda bílastæða, hreinlætisaðstöðu og rafhleðslustöðvum. Í næsta nágrenni er framtíðaruppbyggingarsvæði fyrir íbúðabyggð og því teljum við staðsetninguna afar góða til framtíðar litið. Það er svo sérlega ánægjulegt hvað sveitastjórnir landsbyggðarinnar taka vel á móti okkur og skilja vel vilja íbúa á svæðinu þegar kemur að verslun. Einnig vonumst við til að norðlenskir ræktendur og framleiðendur sjái tækifæri til þess að auka framleiðslu sína með auknu framboði á verslun á svæðinu“ segir Guðmundur Marteinsson framkvæmdastjóri Bónus.

(Mynd frá vinstri: Finnur Oddsson, Forstjóri Haga, Pétur Bjarnason forstjóri Klettás sem á Norðurtorg og Guðmundur Marteinsson, Framkvæmdastjóri Bónus)